Sjö aðilar sækjast eftir tveimur preststörfum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit


Sjö aðilar sóttu um tvö störf sem Biskup Íslands auglýsti til umsóknar í Garða- og Hvalfjarðarstrandaprestakall.

Annars vegar var auglýst eftir almennum presti og hins vegar presti með áherslu á æskulýðs og barnastarf. Sr. Þráinn Haraldsson verður áfram sóknarprestur í Garða- og Hvalfjarðarstrandaprestakalli.

Umsækjendur voru beðnir um að tilgreina um hvort starfið væri sótt, annað eða bæði.

Þessi sjö sóttu um:


Sr. Haraldur Örn Gunnarsson –
sækir um hið almenna prestsstarf
Mynd: Árni Svanur Daníelsson
Sr. Jónína Ólafsdóttir –
sækir um hið almenna prestsstarf
Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir –
sækir um hið almenna prestsstarf
.

Sr. Gunnar Jóhannesson –
sækir um bæði störfin.
Sr. Ursula Árnadóttir –
sækir um bæði störfin
Ægir Örn Sveinsson, mag. theol. –
sækir um bæði störfin
Þóra Björg Sigurðardóttir, mag. theol. –
sækir um bæði störfin


Akraneskirkja í Garðaprestakalli.
Saurbæjarkirkja í Hvalfjarðarstrandarprestakalli.