Einn fremsti bringusundsmaður veraldar kom í heimsókn til ÍA


Elsta sundfólkið sem æfir hjá ÍA fékk frábæra heimsókn á dögunum. Anton Sveinn McKee, sem er einn besti bringusundsmaður veraldar, og sundmaður ársins 2019 á Íslandi, kom þá í heimsókn

Sundfólkið efnilega á Akranesi fékk góð ráð frá Antoni. Hann var með fyrirlestur þar sem hann fór yfir markmiðasetningu, mikilvægi svefns og hugarþjálfunar auk þess sem hann kynnti aðdragandann að umsóknum um háskólanám í Bandaríkjunum.

Einnig fór hann yfir tækniatriði t.d. í stungum og snúningum og sagði frá ýmsum „litlum“ atriðum sem getað hjálpað við að synda hraðar í bringusundi.

Heimsóknin endaði á bringusundsæfingu þar sem Anton sagði sundmönnunum til.

Á heimasíðu Sundfélags ÍA segir að það sé mjög mikilvægt fá tilsögn hjá jafn góðum og reyndum sundmanni og Antoni.