„Gettu betur“ lið FVA mætir Eyjamönnum í kvöld


Í kvöld fer fram viðureign Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum í spurningakeppninni Framhaldsskólanna, Gettu betur.

Keppnin fer fram í húsakynnum RÚV og er keppninni útvarpað á vefsvæðinu Núll.

Nánar hér.

Keppnislið FVA er reynslunni ríkari frá því fyrir ári siðan þegar liðið féll úr keppni í 1. umferð. Lið FVA er þannig skipað:

Amalía Sif Jessen, Karl Ívar Alfreðsson og Guðmundur Þór Hannesson

Besti árangur FVA í þessari keppni var árið 2015 þegar FVA keppti til undanúrslita gegn FG.

Spurningahöfundar og dómarar eru Ingileif Friðriksdóttir, Vilhelm Anton Jónsson og Sævar Helgi Bragason. Spyrill er Kristjana Arnarsdóttir.