Um 130 manns tóku þátt á íbúaþingi um atvinnumál


Það var góð mæting á íbúaþing um atvinnumál sem Akraneskaupstaður stóð fyrir á Garðavöllum miðvikudaginn 22. janúar. Um 130 mættu á þingið og er greinilegt að atvinnumál brenna á íbúum Akraness.

Nánar á vef Akraneskaupstaðar.

Þingið fjallaði almennt um atvinnulíf á Akranesi með áherslu á uppbyggingu á Breið og nágrenni þess. 

Hlutverk KPMG hefur verið að aðstoða og veita Akraneskaupstað í samstarfi við Brim, ráðgjöf við að leiða fram ákvörðun um stefnu varðandi uppbyggingu á Breið og nágrenni þess þannig að í framhaldinu verði hægt að fara í framkvæmd við uppbyggingu. Þingið sem um ræðir var einn af verkþáttum KPMG í þeirri vinnu.   

Í upphafi fundarins flutti Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri kynningu sem samanstóð af verkefnum sem Akraneskaupstaður hefur verið að leggja áherslu á í atvinnuuppbyggingu á Akranesi.

Minntist hann þar lækkun fasteignaskatta fyrir fyrirtæki, nýtt svæði til atvinnuuppbyggingar og  nýjum vef sem Akraneskaupstaður hyggst setja í loftið á næstu mánuðum sem auglýsir Akraness sem vænlega kost til atvinnu- og íbúðauppbyggingar.  

Sævar Kristinsson verkefnastjóri hjá KPMG kynnti sviðsmyndavinnu um framtíð atvinnulífs á Vesturlandi til ársins 2040.  

Sú vinna var unnin á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í samstarfi við KPMG á seinnihluta síðasta árs.

Steinþór Pálsson sérfræðingur og hluthafi hjá KPMG kynnti þá vinnu sem var búin að fara fram á liðnu ári ásamt því að kynna fyrir gestum hlutverk þeirra á umræddu þingi.

Hér má nálgast kynningar sem voru á fundinum.