Mikil eftirspurn er eftir þeim lóðum sem eru í boði fyrir nýbyggingar á Akranesi.
S.l. föstudag var þremur lóðum úthlutað með formlegum hætti í bæjarþingsalnum hjá Akraneskaupstað. Um var að ræða tvær raðhúsalóðir þar sem má byggja alls átta hús, og ein parhúsalóð. Samtals eru þetta tíu hús sem verða byggð á þessum lóðum.
Eins og áður segir var gríðarleg eftirspurn eftir lóðunum en alls bárust 60 umsóknir um þessar þrjár lóðir. Eftirtaldir aðilar fengu úthlutað lóðunumí útdrættinum s.l. föstudag.