Velferðar – og mannréttindasvið með viðbragðsáætlun vegna Covid-19 veirunnar



Í ljósi þeirra stöðu vegna heimsútbreiðslu COVID-19 hefur velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar sett saman viðbragðsáætlun sem er nauðsynleg til að starfsemi sviðsins í heild sinni geti haldið áfram þrátt fyrir heimsfaraldurinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstaðar.

Markmið áætlunarinnar eru að stuðla að öryggi starfsmanna og órofinni þjónustu og lágmarka áhrif velferðar- og mannréttindasviðs í faraldrinum.

Áætlunin er unnin í samræmi við landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu. Akraneskaupstaður hefur sett saman viðbragðsteymi sem fundar reglulega og gætir þess að nýjustu upplýsingar um stig faraldursins frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og landlæknisembættinu skili sér til starfsmanna og íbúa bæjarins.


Smelltu hér til að lesa áætlunina í heild sinni.