Akraneskaupstaður semur við veitingahús bæjarins vegna heimsendinga


Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar í samvinnu við veitingahús bæjarins hafa komið á samstarfi vegna heimsendingu á heitum mat og öðrum veitingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað.

Veitingahús bæjarfélagsins bjóða upp á heimsendingu á mat fyrir alla íbúa sem þess óska.

Akraneskaupstaður hefur milligöngu til þeirra sem ekki geta séð sjálfir um matseld í skemmri eða lengri tíma, t.d. vegna aldurs og fötlunar samkvæmt reglum um félagslega heimaþjónustu.

Þeir sem telja sig eiga rétt á heimsendum mat í gegnum bæjarfélagið sæki um í síma 433-1000 og biðji um Laufeyju eða Hjördísi. 

Eftirfarandi veitingahús bjóða upp á fría heimsendingu:

Galito býður upp á fría heimsendingu á réttum á matseðli ásamt rétti dagsins alla virka daga. Einnig er hægt að panta samkvæmt matseðli um helgar. Pöntunarsími er 430-6767. Nánari upplýsingar má finna á HÉR á facebooksíðu Galitó

Gamla Kaupfélagið býður upp á fría heimsendingu á rétti dagsins alla daga nema sunnudaga. Frá mánudegi til fimmtudags er hægt að panta hádegismat. Frá fimmtudegi til laugardags er einnig hægt að panta á kvöldin. Pöntunarsíminn er: 431-4343.  Nánari upplýsingar má finna HÉR á facebooksíðu Gamla Kaupfélagsins.

Kallabakarí býður upp á fría heimsendingu á nýbökuðu brauði, kökum og salati. Opið alla daga vikunnar. Pöntunarsími er 431-1644.  Nánari upplýsingar má finna á facebooksíðu.

Matarbúr Kaju / Café Kaja býður upp á fría heimsendingu á rétti dagsins samkvæmt matseðli frá mánudegi til laugardags. Lokað er á sunnudögum. Boðið er upp á tvennskonar súpu og brauð og einnig er hægt að útbúa sérstakan mat fyrir þá sem eru sykursjúkir. Pöntunarsími er 840-1665.  Nánari upplýsingar má finna á facebooksíðu.

Mönsvagninn býður upp á heimsendan mat samkvæmt matseðli. Opið á þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum. Pöntunarsíminn er: 867-3163.  Nánari upplýsingar má finna á facebooksíðu Mönsvagnsins.