Afreksíþróttafólk í sundi nýtir ímyndunaraflið við æfingar á meðan laugin er lokuð


Íþróttafólk á Akranesi og víðar gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda sér við efnið á meðan engar skipulagðar íþróttaæfingar eru í boði vegna Covid-19 faraldursins.

Afrekssundfólkið úr röðum Sundfélags Akraness hefur nýtt tímann að undanförnu til að víkka sjóndeildarhringinn varðandi æfingar – enda er sundlaugin lokuð.

Eftirfarandi texti var birtur á fésbókarsíðu Sundfélags Akraness.

Okkur langar sjálfsagt að komast í vatnið aftur og synda en nú höfum við tækifæri til að nýta tímann í æfingar sem við þurfum á að halda og getum bætt okkur í sem eru landæfingar. Til dæmis liðleika, krafti og fleira sem gerir okkur betri og betur undirbúin þegar við byrjum að synda aftur.

Það er mjög gaman að sjá alla sem eru úti að hreyfa sig yfir daginn, íþróttamenn og almenningur er greynilega mjög meðvitaður um hvað það gerir okkur gott að hreyfa okkur og vera úti hvort sem það er að hlaupa eða ganga.


Haldið þessu áfram og höfum það að leiðarljósi að hugsa vel um líkamann okkar , hreyfa sig og fá ferskt loft og það sérstaklega núna á þessum skrítnu tímum sem við erum að upplifa.