56 milljóna kr. munur á hæsta og lægsta tilboði í garðslátt


Grassláttur á opnum svæðum Akraneskaupstaðar er viðamikið verkefni sem margir verktakar sýndu áhuga í útboði sem nýverið fór fram.

Alls bárust sjö tilboð í verkefnið fyrir sumarið 2020.

Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var rétt tæplega 46,2 milljónir kr.

Hæsta tilboðið var rétt um 93,7 milljónir kr. en það lægsta var rétt rúmlega 37,7 milljónir kr.

Gísli Jónsson ehf. á Akranesi átti lægsta tilboðið sem var 8.5 milljónum kr. undir kostnaðaráætlun.

Eftirfarandi tilboð bárust:


Bílakjallarinn ehf. kr. 93.699.000

RÓM verk ehf. kr. 89.833.800

Þróttur ehf. kr. 51.011.550

Garðlist ehf. kr. 47.688.000

Skagaverk ehf. kr. 47.151.000

GJ vélaleiga ehf. kr. 39.265.500

Gísli Jónsson ehf. kr. 37.740.000


Skipulags – og umhverfissráð Akraneskaupstaðar samþykkti að ganga til viðræðna við lægstbjóðanda.