Nýr bolur afhjúpaður fyrir kvennahlaup ÍSÍ


Nýr og endurhugsaður Kvennahlaupsbolur var afhjúpaður með viðhöfn nýverið.  Bolurinn er tákn nýrra tíma, hugsaður frá grunni og slær tóninn fyrir nýja hugsun.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍSÍ.

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2020 fer fram 13. júní, 30 árum eftir að fyrsta kvennahlaupið var haldið.

Árið 1990 var markmiðið að hvetja konur til hreyfingar og almennrar þátttöku í íþróttastarfi og óhætt að segja að það hafi tekist; í dag á Ísland afrekskonur á öllum sviðum íþrótta og almenn hreyfing með besta móti.

Árið 2020 er markmið hlaupsins að hvetja konur til þess að gera hlutina á eigin forsendum og nær sú hugsun langt út fyrir hlaupið og líkamsrækt.

Kvennahlaup nútímans snýst um hreyfingu sem hentar hverjum og einum, samveru kynslóðanna, líkamsvirðingu, sanngirni, umhverfismeðvitund og valdeflingu. 

Einkunnarorð Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ 2020 eru „Hlaupum saman“.

Til að mæta nýjum tímum þarf nýja hugsun. Hinn klassíski Kvennahlaupsbolur hefur verið einkennismerki hlaupsins um árabil og því fylgdi því talsverð eftirvænting í hvert skipti að sjá hvaða litur yrði á bolunum og þannig hlaupinu öllu það árið.

Árið 2020 sjáum við nýjan bol hugsaðan frá grunni en það er Linda Árnadóttir lektor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands og eigandi Scintilla sem hannar.

Bolurinn er bæði fallegur og praktískur, hentar afar vel sem hlaupa- og æfingaflík en nýtist einnig við önnur tilefni.

Bolurinn er 100% endurunninn, úr endurunninni lífrænni bómull og endurunnu plasti.

Konur á öllum aldri

Til að hjálpa okkur við að koma útliti bolsins og hugsuninni í kringum hann á framfæri fengum við til liðs við okkur þekktar konur á öllum aldri. Myndir af þessum konum prýða herferðina í ár og tala sínu máli. Konurnar eru: Andrea Jónsdóttir, Arney Sif Zomers, Donna Cruz, Eliza Reid, Elín Metta Jensen, Emma Dís Örvarsdóttir, Hallveig Jónsdóttir, Írena Dúa Örvarsdóttir, Margrét Erla Maack, Martha Ernstdóttir, Silja Úlfarsdóttir og Viktoría Ósk Bernhardsdóttir. Sjá myndir í viðhengi

Bolurinn er til í takmörkuðu upplagi, seldur á www.tix.is og í verslun Scintilla að Laugavegi 40 þar sem hægt er að máta. 50 fyrstu sem kaupa bol á Tix fá fallegan taupoka í kaupbæti en rétt er að taka fram að kaup á bolnum gefur þátttökurétt í hlaupinu. Í takt við þessa nýju umhverfisstefnu hlaupsins má með einföldum hætti greiða aðeins fyrir þátttöku í hlaupinu á www.tix.is. Jafnframt hefur verið ákveðið að afnema útdeilingu verðlaunapeninga en í gegnum tíðina hafa allir þátttakendur farið heim með medalíu.

Allir geta tekið þátt

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer sem fyrr segir fram þann 13. júní á yfir 80 stöðum á landinu og allir geta tekið þátt óháð aldri, þjóðerni eða kyni. Fjölmennustu hlaupin fara fram í Garðabæ og Mosfellsbæ.  Í ljósi Covid–19 verða gerðar ráðstafanir um fjölda þar sem það á við og allar reglur virtar skilyrðislaust. Þátttakendur eru hvattir til að gera sínar eigin ráðstafanir og virða þessar aðstæður.

Nánari upplýsingar um hlaupastaði og tímasetningar birtast á næstu dögum á www.kvennahlaup.is. Hlaupum saman laugardaginn 13. júní. 

Miðasala fyrir hlaupið sem og forsala bola er hafin á www.tix.is.