Akranes í fararbroddi – Hjóla – og gönguvika dagana 10.-13. júní


Akranes er fyrsta sveitarfélagið sem býður upp á „Hjóla – og gönguviku“ í verkefninu Hjólafærni á Íslandi. Um er að ræða þróunarverkefni sem fram fer dagana 10.-13. júní.

Akranes er fyrsta sveitarfélagið til að taka þátt en verkefnið snertir samgöngur, menningu, heilsu og loftslagsmál.

Dagana 10.-13. júní verður fyrsta hjóla- og gönguvika verkefnisins haldið á Akranesi.

Dagskrá Hjóla- og gönguvikunnar verður að hluta til sýnileg almenningi með opnum viðburðum, kynningum, göngu og hjólaferðum, viðgerðarnámskeiðum og hjóladegi. Hjólavottunin er unnin meira með þeim fyrirtækjum og stofnunum sem taka þátt í verkefninu og verður vonandi til batnaðar þannig að bæjarbúar og ferðamenn muni upplifa bætta hjólaaðstöðu í komandi framtíð.

Undirritun Alþjóðlega Göngusáttmálans er ný af nálinni og verður þetta fyrsta sveitarfélagið á Íslandi sem undirritar sáttmálann. Þar er áhersla á ágæti göngu fyrir öll samfélög og tekið utan um virði þess að ganga.

Opnir viðburðir vikunnar eru kynntir á Facebook og eru þessir:

Hjóla- og göngudagar á Akranesi:

Kynningarfundur 10. júní kl. 9:00-10:00 í bæjarþingsalnum Stillholti 16-18. 

https://www.facebook.com/events/870416886802553/

Rýni- ganga um Akraneskaupstað, 10. júní kl. 13:00-14:30 

https://www.facebook.com/events/686375938599128/

Rýni- hjólum um Akraneskaupstað, 10. júní 14:45-16:00 

https://www.facebook.com/events/1624799410991551/

Bíllausi dagurinn á Akranesi, 13. júní frá kl. 12:00-15:00

Hjólafærni á Íslandi er fræðasetur um samgönguhjólreiðar og virkar samgöngur. Hjólafærni hefur um árabil leitt umræðuna innanlands um gildi virkra samgangna, hvort heldur með augumumhverfissins eða lýðheilsunnar. Þetta er nýtt verkefni sem byggir á áralangri reynslu og þekkingu sem hefur orðið til í starfi Hjólafærni frá stofnun þess www.hjolafaerni.is