Breytingar hjá varafulltrúum Sjálfstæðisflokksins


Á síðasta fundi bæjarráðs Akraness óskaði Kristjana Helga Ólafsdóttir varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins eftir lausn frá setu og þeim embættum sem þeirri stöðu fylgja, einnig óskaði Kristjana Helga eftir lausn frá embætti varaformanns stjórnar Höfða.

Bæjarstjórn Akraness samþykkti lausnarbeiðni Kristjönu Helgu

Nýtt kjörbréf var gefið út til handa varabæjarfulltrúanum Ester Björk Magnúsdóttur af yfirkjörstjórn Akraneskaupstaðar í samræmi við niðurstöðu sveitarstjórnakosninganna þann 26. maí 2018.

Ester Björk skipaði 10 sæti lista framboðs Sjálfstæðisflokksins (D) en framboðið fékk fjóra kjörna bæjarfulltrúa.