Fimmtudagur á Írskum dögum – hvaða viðburðir eru í gangi á Skaganum


Það viðrar vel til útiveru í dag þegar bæjarhátíðin Írskir dagar hefst með formlegri dagskrá.

Hér fyrir neðan má sjá hvaða viðburðir eru í boði á fyrsta degi hátíðarinnar.

10:00-12:00 Gallerí Bjarni Þór Skólabraut 22
Sýningin „Rokkum feitt inn í Írska daga“.

14:00 Írskir dagar verða settir í skrúðgarðinum við Suðurgötu með þátttöku leikskólanna á Akranesi

14:00-17:00 Popp up í portinu með Heiðmari! Gamla kaupfélagið

14:00-18:00 10 ára afmæli Smáprents Dalbraut 16

15:00-20:00 Gallerí Bjarni Þór Skólabraut 22
Sýningin „Rokkum feitt inn í Írska daga“.

16:00-17:00 Grillveisla Húsasmiðjunnar
Hin árlega grillveisla Húsasmiðjunnar er fyrir löngu orðin fastur liður á hátíðinni. Tilvalið að líta við og fá sér eina með öllu.

16:00-21:00 Stúdíó Jóka Skagabraut 17, opnar vinnustofur

17:00-18:00 Tónlistarsmiðja á Smiðjuloftinu

Fyrir alla fædda 2010 og eldri. Yngri en 14 ára séu í fylgd með fullorðnum. Klukkutími fullur af tónlist sem hressir, bætir og kætir. Trommuhringur, söngur og fjör. Allir geta tekið þátt, vanir og óvanir. Skráning á [email protected] eða í síma:  623-9293. Þátttökugjald: 1.500 kr.

18:00 Næturfærð sýnd í Bíóhöllinni

Frumsýning á nýrri stuttmynd Fjöliðjunnar. Frítt inn.

18:30 Álmaðurinn 2020
Keppni hefst við bílastæði við Akraneshöll. Keppt er í náttúruparadísum Akraness.

18:30 FC Ísland – Úrvalslið Akraness, knattspyrnuleikur við Jaðarsbakka
Stöð 2 tekur upp leikinn þar sem gamlar stjörnur úr boltanum mætast. Til styrktar góðu málefni.

20:00-23:00 Hreimur 1997-2020 á Gamla Kaupfélaginu
Hreimur ásamt 7 manna hljómsveit spilar öll vinsælustu lög Hreims frá 1997-2020. Miðasala á tix.is