Sjö samstarfsmenn á Akranesi með Covid-19 – Lögreglan hvetur til hertra sóttvarna


Sjö samstarfsmenn á Akranesi hafa greinst með COVID-19. Tveir þeirra komu nýlega til landsins en reyndust neikvæðir við skimun á landamærum. Þessir einstaklingar eru nú í einangrun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.

Lögreglan hvetur alla til að huga að eigin smitvörnum og bendir á að margir virðist vera kærulausir að þessu leytir

Lögreglan hér á Vesturlandi sendir út þau skilaboð til einstaklinga og fyrirtækja að herða allar sóttvarnir. Fylgjum fyrirmælum sóttvarnalæknis sem hefur frá upphafi hamrað á að fólk virði 2ja metra regluna, þvoi sér reglulega um hendur og noti handspritt. Tökum á þessu saman, við erum öll almannavarnir. Lögreglan á Vesturlandi.