Lögreglustjóri Vesturlands á meðal umsækjenda um lögreglustjórastarfið á Suðurnesjum


Umsóknarfrestur um tvö embætti lögreglustjóra rann út 14. september. Umsækjendur um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru fimm talsins, en sjö sóttu um embætti Lögreglustjórans í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands.

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Vesturlandi, sækist eftir embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Eftirtaldir sóttu um:

Umsækjendur um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum:

  • Daniel Johnson – Fjórði æðsti herlögreglumaður svissneska ríkisins G1(USC1) undir Herlögreglustjóra Sviss
  • Hulda Elsa Björgvinsdóttir – Sviðstjóri ákærusviðs LRH
  • Kolbrún Benediktsdóttir – Varahéraðssaksóknari
  • Súsanna Björg Fróðadóttir – Aðstoðarsaksóknari LSS
  • Úlfar Lúðvíksson – Lögreglustjórinn á Vesturlandi

Umsækjendur um embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum:

  • Arndís Bára Ingimarsdóttir – Settur lögreglustjóri í Vestmannaeyjum
  • Daníel Johnson – Fjórði æðsti herlögreglumaður svissneska ríkisins G1(USC1) undir Herlögreglustjóra Sviss
  • Grímur Hergeirsson – Staðgengill lögreglustjóra á Suðurlandi
  • Helgi Jensson – Aðstoðarsaksóknari Lögreglustjórinn á Austurlandi
  • Kristmundur Stefán Einarsson – Aðstoðarsaksóknari LRH
  • Logi Kjartansson – Lögfræðingur
  • Sigurður Hólmar Kristjánsson – Saksóknarfulltrúi