Líkamsræktinni á Jaðarsbökkum lokað vegna Covid-19 smits


Líkamsræktarsalurinn á Jaðarsbökkum verður lokaður frá og með deginum í dag, 18. september, vegna COVID-19 smits sem greindist hjá iðkenda salsins.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað og ÍA.

Sú staða er komin upp á Akranesi að einstaklingur sem greindist með COVID-19 smit hafði stundað líkamsrækt í líkamsræktarsalnum á Jaðarsbökkum sl. þriðjudag þann 15. september.

Fyrirmæli smitrakningarteymis er að allir sem sóttu líkamsræktina sem iðkendur umræddan dag þurfa að fara í sóttkví til og með þriðjudeginum 22. september nk. Viðkomandi losnar úr sóttkví í framhaldinu þegar hann hefur farið í skimun og fengið neikvæða niðurstöðu.

Halda þarf sérstaklega utan um skráningu þeirra sem fara í sóttkví og mun Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA, annast skráningu og miðlun upplýsinga.

Allir þeir sem fóru í ræktina umræddan dag sem iðkendur eru því beðnir um að hafa samband við Guðmundu í síma 691-5602 eða með tölvupósti á netfangið [email protected].

Hún mun i framhaldinu senda viðkomandi upplýsingar frá smitrakningateyminu.

Mikilvægt er að bregðast við þessu sem fyrst svo unnt sé að lágmarka hættuna á frekari útbreiðslu smitsins.