Nýjustu Covid-19 tölurnar á Akranesi – mánudaginn 12. okt 2020



Alls greindust 50 Covid-19 smit á Íslandi í gær og voru 33 þeirra í sóttkví. Þetta kemur fram á vefnum covid.is.

Á Vesturlandi eru 20 í einangrun og þar af 12 á Akranesi. Alls eru 39 í sóttkví á Vesturlandi og þar af 32 á Akranesi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.

Alls voru 1.503 sýni tekin í gær, sunnudaginn 11. okt, en 2.152 laugardaginn 10. okt.