Sigmundur og Jón Örn eigast við í getraunakeppni KFÍA



Getraunastarf Knattspyrnufélags ÍA hefur verið fastur punktur í tilverunni hjá fjölmörgum Skagamönnum. Tippklúbbur KFÍA hefur brugðist við breyttum aðstæðum vegna Covid-19 lagt áherslu á að nýta tæknina í getraunastarfinu og nýverið var sett af stað getraunaáskorun sem mun verða vikulegur viðburður á keppnistímabilinu.

Um liðna helgi hófst getraunakeppnin með viðureign Sigmundar Ámundasonar og Kristleifs Skarphéðins Brandssonar. Þar hafði Sigmundur betur og heldur hann því velli í áskoruninni í þessari viku. Mótherji Sigmundar er Jón Örn Arnarson. Sigmundur notar getraunaforrit á sínum seðli en Jón Örn er með opin seðil.

Getraunakeppnin er með þeim hætti að keppendur fylla út 96 raðir í Enska boltanum. Sá sem fær fleiri rétta er sigurvegari og fær nýjan mótherja í næstu umferð. Ef jafnt er hjá keppendum þá halda þeir báðir áfram í næstu umferð.

Í lok tímabilsins fer fram keppni á milli þeirra tippsérfræðingar sem sigrað hafa í flestum viðureignum eða náð bestum árangri. Nánari útfærsla á úrslitakeppninni verður birt síðar.

Einar Brandsson er í forsvari fyrir getraunastarf KFÍA. Einar segir í samtali við Skagafréttir að vegna Covid-19 sé ekki hægt að hefja hið hefðbundna getraunastarf með venjulegum hætti. „Það er mikil þörf að styðja við bakið á KFÍA með þessum hætti. Og um næstu helgi er stór pottur eða 190 milljónir kr. fyrir 13 rétta. Við bjóðum upp á þá lausn að þeir sem vilja taka þáttt geta sent inn sínar raðir á netfangið [email protected] – það þarf að gerast fyrir kl. 10.00 á laugardagsmorgni. Þessar raðir verða þá settar inn í kerfið hjá okkur. Þeir sem tippa í gegnum Getraunakerfi KFÍA styrkja okkar félag aukalega þar sem hærra hlutfall af hverri röð rennur beint til KFÍA heldur en ef tippað er á 1×2.is eða á sölustöðum. Þeir sem tippa ráða svo hvort þeir setja miðann inn í kerfi 1×2.is til að eiga möguleika á vinning. Miði með 96 röðum kostar 1.440 kr,“ segir Einar Brandsson við skagafrettir.is.

Sigmundur Ámundason spáir svona fyrir leiki helgarinnar:

Jón Örn Arnarson spáir svona fyrir leiki helgarinnar: