Fjölmörg áhugaverð erindi á bæjarstjórnarfundi unga fólksins á Akranesi

Bæjarstjórn unga fólksins á Akranesi hélt árlegan fund sinn þann 17. nóvember s.l. Þetta er í 19. sinn sem slíkur fundur fer fram en í ár var fjarfundarbúnaður notaður til að koma fundargestum saman.

Fulltrúar bæjarstjórnar, bæjarstjóri og starfsfólks skóla- og frístundasviðs voru á þessum fundi sem Valgarður L. Jónsson forseti bæjarstjórnar stýrði.

Bæjarfulltrúar að þessu sinni voru Jóel Þór Jóhannesson f.h. nemendaráðs Grundaskóla, Hanna Bergrós Gunnarsdóttir f.h. Arnardalsráðs, Ísak Emil Sveinsson f.h. nemendafélags Brekkubæjarskóla, Helgi Rafn Bergþórsson f.h. Tónlistarskóla Akraness, Gylfi Karlsson f.h. nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, Helena Rut Kára dóttir fulltrúi ungmenna með fötlun, Guðjón Snær Magnússon fulltrúi ungmenna 20 ár og eldri og Ísak Örn Elvarsson fulltrúi Íþróttabandalag Akranes. Þessir fulltrúar eru allir í Ungmennaráði Akranes.

Venja hefur verið í undirbúningi fyrir fundinn er að halda málþing en þetta árið var það ekki í boði en í staðinn fór fram rafræn könnun meðal ungmenna. Niðurstaða hennar voru notaðar við undirbúning erinda fundarins. Margar góðar ábendingar og tillögur komu fram í könnunni. 

Erindi bæjarfulltrúana voru fjölbreytt og tengdust m.a. andlegri heilsu barna og ungmenna, umhverfismálum, Akratorgi sem miðpunkt mannlífs, aðstöðu ungmenna til listsköpunar og stefnumótun um fræðsluþörf barna og ungmenna. 

Eftir framsögu ungmennanna fór fram umræað við hina eiginlegu bæjarfulltrúa og sköpuðust afar líflegar og ekki síður gagnlegar umræður. Bæjarstjóri og kjörnir bæjarfulltrúar þökkuðu ungmennunum fyrir vel undirbúin erindi og málefnalega framgöngu. Fundinum var streymt beint af Facebook síðu Akraneskaupstaðar.

Upptaka af fundinum er hér fyrir neðan:

1. Andleg heilsa barna og ungmenna á Akranesi


Valgarður L. Jónsson forseti bæjarstjórnar býður fundarmenn velkomna til 19. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og fer yfir fyrirkomulag fundar. Forseti kynnir bæjarstjórn unga fólksins.

Jóel Þór Jóhannesson tók fyrstur til máls, Guðjón Snær Magnússon og Helgi Rafn Bergþórsson fylgdu eftir erindinu.

Til máls tóku:
Bára Daðadóttir
Elsa Lára Arnardóttir
Sandra Margrét SigurjónsdóttirFylgiskjöl:

2. Umhverfismál- flokkun heimila, Grundatangi og almenningssamgöngur


Ólafur Adolfsson kom inn á fundinn.

Ísak Örn Elvarsson tók fyrstur til mál og Helena Rut Kárdóttir fylgdi eftir erindinu.

Til máls tóku:
Ragnar B. Sæmundsson
Ólafur Adolfsson
Einar Brandsson
Ragnar B. Sæmundsson
Valgarður Lyngdal Jónsson
Fylgiskjöl:

3. Akratorg- miðpunktur mannlífs og menningarviðburða- heildarbragur með hliðsjón af umferðarhraða og aðbúnaði


Gylfi Karlsson tók fyrstur til máls.

Tóku til máls:
Ragnar B. Sæmundsson
Valgarður Lyngdal Jónsson
Einar Brandsson
Ólafur Adolfsson

Bára Daðadóttir vék af fundi.Fylgiskjöl:

4. Listsköpun ungmenna- aðstaða og aðbúnaður ungra listamanna.


Ísak Emil Sveinsson tekur fyrstur til máls og Helgi Rafn Bergþórsson fylgdi eftir erindinu.

Tóku til máls:
Elsa Lára Arnardóttir
Einar Brandsson
Valgarður Lyngdal Jónsson
Sævar Freyr Þráinsson
Ólafur Adolfsson

Fylgiskjöl:

5. Fræðsla- þörf barna og ungmenna og stefnumótun.

Hanna Bergrós Gunnarsdóttir tók fyrst til máls, Ísak Örn Elvarsson og Gylfi Karlsson fylgdu eftir erindinu.

Tóku til máls:
Sævar Freyr Þráinsson
Valgarður Lyngdal Jónsson
Elsa Lára Arnardóttir
Sandra Margrét Sigurjónsdóttir
Valgarður Lyngdal Jónsson

Forseti bæjarstjórnar Valgarður Lyngdal Jónsson þakkaði bæjarfulltrúum unga fólksins fyrir góð og málefnaleg erindi.