Næst stærsti dagur Skagafrétta frá upphafi

Aðsóknin á skagafrettir.is var í hæstu hæðum í gær, þriðjudaginn 1. desember 2020.

Alls komu 5.117 gestir í heimsókn á fréttavefinn skagafrettir.is og er það næst stærsti dagur Skagafrétta frá því að vefurinn fór í loftið í nóvember 2016.

Lesendur gærdagsins flettu mörgum fréttum en tæplega 14.000 flettingar voru á fréttavefnum í gær.

Að meðaltali var hver lesandi í tæplega eina mínútu að lesa hverja frétt.

Og lesendur flakka út um allt í fjögurra ára sögu Skagafrétta á hverjum einasta degi.

Þetta er í annað sinn sem aðsóknin á skagafrettir.is fer yfir 5.000 heimsóknir á einum degi.

Aðsóknarmetið frá óviðrishelgi um miðjan febrúar á þessu ári stendur því enn.

Þann 14. febrúar komu 5.139 gestir í heimsókn
á skagafrettir.is eða sem nemur
70% af bæjarbúum á Akranesi.

Það gerir um 70% af íbúafjölda Akraness.

Metaðsóknir síðustu fjögurra ára á einum degi.

2020 – 5.139 (14. febrúar)
2020 – 5.117 (1. desember)

2019 – 4.120 (14. janúar)
2018 – 3.165 (14. nóvember)
2017 –  2.997  (20. desember)