Örvhentur fjöllistamaður opnaði glugga nr. 13 í „Skaginn syngur inn jólin með þér“

Í dag var þrettándi glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Þetta skemmtilega verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi.

Alls er 24 tónlistaratriði á dagskrá og er einn gluggi opnaður kl. 9 á hverjum morgni fram að jólum.

Mikil leynd hvílir yfir flytjendum en atriðin voru tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu í Görðum.

Gísli Gíslason, fjöllistamaður, opnaði 13. gluggann í dag með lagi eftir Evert Laube og texta sem Bragi Valdimar Skúlason samdi. Lagið heltir, Nú mega jólin koma fyrir mér.

Eins og áður segir er Gísli örvhentur fjöllistamaður, bæjarstjórinn fyrrverandi spilar m.a. á gítar, er tónmenntaður harmonikkuleikari og fyrrum hafnarstjóri Faxaflóahafna er að sjálfsögðu með „pungapróf“ á smábát.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir eru kynnar í þessu verkefni. Heiðar Mar Björnsson sá um upptökur og Sigurður Ingvar Þorvaldsson sá um hljóðupptökurnar.

Hljómsveitarstjórinn er Birgir Þórisson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hann er einnig í Húsbandinu sem spilar undir hjá tónlistarfólkinu.

Auk hans eru Pétur Valgarð Pétursson (gítar), Sigurþór Þorgilsson (bassi) og Þorvaldur Kári Ingveldarson (trommur).

12. desember:

11. desember:

10. desember:

9. desember:

8. desember:

7. desember:

6. desember:

5. desember:

4. desember:


3. desember:

2. desember:

1. desember: