Karatemaður ársins 2020 – Kristrún Bára Guðjónsdóttir

Umfjöllun um íþróttafólkið sem kemur til greina í kjörinu á íþróttamanni Akraness 2021.

Þú getur kosið með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Opnað hefur verið fyrir kosningu HÉR í þjónustugátt Akraneskaupstaðar og er kosningin opin frá 21. til og með 29 desember.

Kristrún Bára Guðjónsdóttir leggur sig alla fram í þjálfun og á æfingum og er góð fyrirmynd fyrir yngri keppendur í karate. Hún er í fremstu röð í karate og hefur náð góðum árangri á mótum fyrir hönd Karatefélags Akraness á síðustu árum og keppir núna í aldursflokki 16-17 ára.

Kristrún keppir í kata sem er hennar keppnisgrein innan karate og þar er hún í sterkum hópi karatekvenna á Íslandi. Hún keppti á RIG 2020 Reykjavík International Games í kata þar sem hún náði góðum árangri. Hún keppti einnig á Grand PRIX mótaröðinni og á Íslandsmóti í flokki 16-17 ára sem og flokki fullorðinna í kata kvenna.

Kristrún Bára hefur æft karate frá 7 ára aldri og alltaf verið á verðlaunapalli fyrir Karatefélag Akraness. Kristrún hefur einnig verið að æfa með Karatedeild Breiðabliks og æfir þar með meistaraflokki.

Kristrún hefur verið valin í unglingalandsliðið og æfir núna með landsliðshópi Íslands í kata. Kristrún Bára hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Karatefélagi Akraness í 2 ár og þjálfar þar með yfirþjálfara félagsins.

Helstu afrek Kristrúnar Báru á Íslandi á árinu:

  1. sæti í kata í flokki 16-17 ára á Íslandsmótinu.
  2. sæti í kata í flokki fullorðinna á Íslandsmótinu.
  3. sæti í kata í flokki 16 – 17 ára á fyrsta Grand Prix mótinu.
  4. sæti í kata í flokki Female Junior á Reykjavík International Games.

Hvernig stendur Kristrún Bára sig á landsvísu?

Kristrún Bára er meðal þriðju bestu kata keppenda í kvennaflokki í aldurshópnum 16-17 ára á Íslandi og meðal fimm bestu kata keppanda í kvennaflokki.