Bólusetning vegna Covid-19 – veistu hvar þú er í forgangsröðinni?


Nýverið gaf sóttvarnarlæknir út reglugerð í samráði við heilbrigðisráðherra varðandi hvaða hópar njóti forgangs við bólusetningar vegna Covid-19 faraldursins.

Bólusetning vegna Covid-19 hófst í lok ársins 2020 en upplýsingarnar hér fyrir neðan eru af vefnum covid.is.

Hópur 1

Heilbrigðisstarfsfólk og annað starfsfólk sem starfar á bráðamóttökum og gjörgæsludeildum sjúkrahúsa Landspítala og gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri.

Hópur 2

Heilbrigðisstarfsfólk á COVID-19 göngudeild og legudeildum fyrir sjúklinga sem smitast hafa af COVID-19.

Hópur 3

Einstaklingar sem dvelja á hjúkrunar- og dvalarheimilum og öldrunardeildum sjúkrahúsa.

Hópur 4

Sjúkraflutningamenn, bráðatæknar, starfsmenn Landhelgisgæslunnar, starfsmenn slökkviliðsins, fangaverðir, útkalls lögreglumenn.

Hópur 5

Heilbrigðisstarfsfólk sem sinna sjúklingum með beinum hætti og nauðsynlegt er að fái bólusetningu.

Hópur 6

60 ára og eldri.

Hópur 7

Einstaklingar með undirliggjandi langvinna sjúkdóma sem eru í sérstökum áhættuhópi.

Hópur 8

Starfsfólk leik- grunn- og framhaldsskóla og tiltekið starfsfólk félags- og velferðarþjónustu.

Hópur 9

Einstaklingar sem eru í viðkvæmri stöðu vegna félagslegra- og efnahagslegra aðstæðna.

Hópur 10

Allir aðrir sem óska bólusetningar.