Hér getur þú fylgst með kjörinu á Íþróttamanni Akraness 2020

Íþróttamaður Akraness 2020 verður kjörinn í kvöld.

Athöfnin fer fram á Garðavöllum og að þessu sinni verður aðeins hægt að fylgjast með í gegnum beina útsendingu frá ÍATV.

Athöfnin hefst kl. 18:20 og er hlekkur á útsendinguna hér fyrir neðan.


Fyrst var kosið um Íþróttamann Akraness árið 1965 en frá árinu 1977 hefur kjörið farið fram á hverju ári. Kjörið í kvöld verður því það 47. frá upphafi.

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, hefur oftast fengið þessa viðurkenningu eða sjö sinnum alls.

Sundkonurnar Ragnheiður Runólfsdóttir og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir hafa báðar verið sex sinnum alls efstar í kjörinu á Íþróttamanni Akraness.

Alls hafa konur verið kjörnar 22 sinnum en karlar í 22 skipti.

Sundíþróttin er með 21 titlil á þessu sviði en golfíþróttin er með 11 titla og í þriðja sæti eru fulltrúar úr knattspyrnunni með 10 titla.

Íþróttamenn Akraness frá upphafi:

2019: Jakob Svavar Sigurðsson, (2) hestamennska (2).
2018: Valdís Þóra Jónsdóttir (7) golf (11).
2017: Valdís Þóra Jónsdóttir, (6) golf (10).
2016: Valdís Þóra Jónsdóttir, (5) golf (9).
2015: Ágúst Júlíusson, (2) sund (21)
2014: Ágúst Júlíusson, (1) sund (20).
2013: Jakob Svavar Sigurðsson, (1) hestamennska (1).
2012: Inga Elín Cryer, (2) sund (19).
2011: Inga Elín Cryer, (1) sund (18).
2010: Valdís Þóra Jónsdóttir, (4) golf (8).
2009: Valdís Þóra Jónsdóttir, (3)golf (7).
2008: Valdís Þóra Jónsdóttir, (2) golf (6).
2007: Valdís Þóra Jónsdóttir, (1) golf (5).
2006: Eydís Líndal Finnbogadóttir, (1) karate.
2005: Pálmi Haraldsson, (1) knattspyrna (10).
2004: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (6) sund (17).
2003: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (5) sund (16).
2002: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (4) sund (15).
2001: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (3) sund (14).
2000: Birgir Leifur Hafþórsson, (3) golf (4).
1999: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (2) sund (13).
1998: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (1) sund (12).
1997: Þórður Emil Ólafsson, (1) golf (3).
1996: Birgir Leifur Hafþórsson, (2) golf (2).
1995: Sigurður Jónsson, (2) knattspyrna (9).
1994: Sigursteinn Gíslason, (1) knattspyrna (8).
1993: Sigurður Jónsson, (1) knattspyrna (7).
1992: Birgir Leifur Hafþórsson, (1) golf (1).
1991: Ragnheiður Runólfsdóttir, (6) sund (11),
*(Íþróttamaður ársins á Íslandi).
1990: Ragnheiður Runólfsdóttir, (5) sund (10).
1989: Ragnheiður Runólfsdóttir, (4) sund (9).
1988: Ragnheiður Runólfsdóttir, (3) sund (8).
1987: Ólafur Þórðarson, (1) knattspyrna (6).
1986: Ragnheiður Runólfsdóttir, (2) sund (7).
1985: Ragnheiður Runólfsdóttir, (1) sund (6).
1984: Bjarni Sigurðsson, (1) knattspyrna (5).
1983: Sigurður Lárusson, (1) knattspyrna (4).
1982: Ingi Þór Jónsson, (2) sund (5).
1981: Ingólfur Gissurarson, (2) sund (4).
1980: Ingi Þór Jónsson, (1) sund (3).
1979: Ingólfur Gissurarson, (1) sund (2).
1978: Karl Þórðarson, (1) knattspyrna (3).
1977: Jóhannes Guðjónsson, (1) badminton (1) / knattspyrna (2).
1972: Guðjón Guðmundsson, (1) sund (1), (Íþróttamaður ársins á Íslandi).
1965: Ríkharður Jónsson, (1) knattspyrna (1).