Skaginn 3X – Þorgeir & Ellert styðja rausnarlega við bakið á ÍA – fjórða árið í röð

Fjórða árið í röð sýna eigendur og starfsmenn Skagans – Þorgeirs & Ellert mikinn rausnarskap með því að styrkja íþróttahreyfinguna á Akranesi um 3 milljónir króna.

Íþróttahreyfingina á Akranesi fékk nýverið styrk að upphæð 3 milljónum kr. frá Skaginn 3X / Þorgeir & Elllert. Þetta er fjórða árið í röð sem eigendur og starfsmenn þessara fyrirtækja sýna mikinn rausnarskap í garð ÍA.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍA sem er hér fyrir neðan:

Fyrir þann stuðning sem Íþróttabandalagið finnur í orðum og í verki er bandalagið mjög þakklátt. Styrkurinn er mjög mikilvægur fyrir starfið sem unnið er í aðildarfélögum ÍA. Síðatliðin þrjú ár hefur samtals níu milljónum króna verið úthlutað úr sjóði sem Skaginn – Þorgeir og Ellert stofnuðu til að styrkja barna- og unglingastarf ÍA.

Margvísleg verkefni hafa hlotið styrki allt frá eflingu einstakra íþróttagreina og til að senda leiðbeinendur á þjálfaranámskeið. Við hjá ÍA þökkum enn á ný stórhug eigenda og starfsmanna Skagans – Þorgeirs & Ellerts.

Íþróttabandalagið hvetur aðildarfélög sín til þess að sækja um styrk úr þessum sjóði með því að senda inn umsókn á netfangið [email protected] fyrir 15. febrúar næstkomandi.

Íþróttabandalag Akraness.