Hamingja hjá tippklúbbi KFÍA eftir tilslakanir – Smári heldur sínu striki

Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í nítjándu viku tímabilsins. Smári Guðjónsson lagði Gísla Gíslason að velli um síðustu helgi en árangur þeirra á síðasta seðli fer aldeilis ekki í sögubækurnar. Sigurður M. Sigurðsson, dyggur stuðningsmaður getraunastarfs ÍA, er mótherji Smára í þessari viku en Smári er að hefja sína fjórðu viku í áskoruninni.

Síðustu helgi kepptu Gísli Gíslason og Smári Viðar Guðjónsson og vann Smári. Árángurinn var ekki til skrásetnigar. Nú kynnum við til leiks SigurðM sigurðsson en hann er dyggur stuðnigsmaður ÍA og hefur verið lengi með okkur í stórahópnum.

Einar Brandsson er í skipstjórinn brúnni í getraunastarfi KFÍA og segir hann að nú sé þörf á að styrkja klúbbin sinn og ekki verra ef því fylgir bónus en þessa helgina er um 200 millur fyrir 13 rétta.

Getraunastarfið hjá KFÍA verður ekki aðeins í rafrænum heimi laugardaginn 27. febrúar þar sem að tilslakanir í samkomuhaldi gerir hópnum það kleift að hittast á tímabilinu 11-13 á Jaðarsbökkum.

Þeir sem ekki komast en vilja senda inn raðir í gegnum kerfið hjá klúbbnum geta sent raðir (fyrir kl 12.00 laugardag) á Einar Brandsson ([email protected] eða á massenger á fb) og verða þær þá settar inn í kerfið.

Þeir sem tippa í gegnum Getraunakerfi KFÍA styrkja okkar félag aukalega þar sem hærra hlutfall af hverri röð rennur beint til KFÍA heldur en ef tippað er á 1×2.is eða á sölustöðum.

Benedikt Valtýsson er sá sem er efstur í þessari áskorun en hann var samfellt með í sjö vikur – sem er besti árangurinn í áskoruninni til þessa.

Getraunakeppnin er með þeim hætti að keppendur fylla út 96 raðir í Enska boltanum. Sá sem fær fleiri rétta er sigurvegari og fær nýjan mótherja í næstu umferð. Ef jafnt er hjá keppendum þá halda þeir báðir áfram í næstu umferð.

Getraunastarf Knattspyrnufélags ÍA hefur í gegnum tíðina verið fastur punktur í tilverunni hjá fjölmörgum á Akranesi. Vegna aðstæðna í samfélaginu hefur tippklúbbur KFÍA lagt áherslu á að nýta tæknina í getraunastarfinu og er það leikur einn að taka þátt og styðja við bakið á KFÍA á sama tíma.

Úrslit úr fyrri umferðum:

1. Sigmundur Ámundason – Kristleifur Skarphéðinn Brandsson.
2. Sigmundur Ámundason – Jón Örn Arnarson.
3. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir. – jafntefli.
4. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.- jafntefli.
5. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.
6. Jón Örn Arnarson – Örn Gunnarsson.
7. Örn Gunnarsson – Sigurður Páll Harðarson.
8. Örn Gunnarsson – Benedikt Valtýsson. – jafntefli.
9. Örn Gunnarsson – Benedikt Valtýssson.
10. Benedikt Valtýssson – Þuríður Magnúsdóttir.
11. Benedikt Valtýsson – Arnbjörg Stefánsdóttir
12. Benedikt Valtýsson – Jón Gunnlaugsson.
13. Benedikt Valtýsson – Viktor Elvar Viktorsson. – jafntefli.
14. Benedikt Valtýsson – Viktor Elvar Viktorsson.
15. Viktor Elvar Viktorsson – Óskar Rafn Þorsteinsson.
16. Óskar Rafn Þorsteinsson – Smári Guðjónsson.
17. Smári Guðjónsson – Gísli Gíslason.
18. Smári Guðjónsson – Gísli Gislason.
19. Smári Guðjónsson – Sigurður M. Sigurðsson.


Í lok tímabilsins fer fram keppni á milli þeirra tippsérfræðingar sem sigrað hafa í flestum viðureignum eða náð bestum árangri. Nánari útfærsla á úrslitakeppninni verður birt síðar.

Smári spáir þannig fyrir leiki helgarinnar:

Smári Guðjónsson.

Sigurður M. spáir þannig fyrir leiki helgarinnar: