Akraneskaupstaður hvetur foreldra að koma ekki með börn í leikskólana fram að páskum

Akraneskaupstaður hefur sent frá sér tilkynningu þar sem að óskað er eftir því að foreldrar sem eiga börn sem nýta leikskólaþjónustu bæjarins haldi börnum sínum heima út marsmánuð á meðan hertar samkomutakmarkanir gilda. Bæjarráð Akraness fjallaði á fundi sínum þann 25. mars um breytingar á reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar og er bókun bæjarráðs eftirfarandi:

Vegna sóttvarnaraðgerða yfirvalda vegna farsóttar, óskar Akraneskaupstaður þess að þeir foreldrar leikskólabarna sem eiga þess nokkurn kost, haldi börnum sínum heima og komi ekki með þau í leikskólana meðan hertar samkomutakmarkanir gilda, sem er til fyrsta apríl næstkomandi. Foreldrum verða endurgreidd leikskólagjöld sbr. framangreint hafi viðkomandi tilkynnt leikskólanum um slíka ráðstöfun fyrirfram. Frístundastarf sveitarfélagsins fyrir börn á skólaaldri fellur niður meðan á samkomutakmörkunum stendur og þá gjöld fyrir sama tímabil.
Þess skal getið að bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, ásamt öðrum bæjar- og sveitarstjórum á Vesturlandi, hefur í samskiptum við sóttvarnarlækni Vesturlands áréttað mikilvægi þess að forgangsröðun bólusetninga sé endurskoðuð í ljósi eðlisbreytingu á COVID-19 faraldrinum sem getur haft mun viðameiri áhrif á starfsemi leikskóla og skipað starfsfólki leikskólanna í hóp annars framlínufólks. Sóttvarnarlæknir hefur tekið undir þessi sjónarmið og tekið málið áfram innan sóttvarnaryfirvalda/stjórnsýslunnar. Þessum áherslum hefur einnig verið komið á framfæri við Samband íslenskra sveitarfélaga.