Jafnlaunakerfi innleitt í alla starfsemi Akraneskaupstaðar

Jafnlaunakerfi hefur verið innleitt í alla starfsemi Akraneskaupstaðar. Í byrjun mars á þessu ári fékk Akraneskaupstaður staðfestingu þess efnis frá Versa vottun ehf.

Jafnlaunakerfi hefur verið innleitt í alla starfsemi Akraneskaupstaðar en það er stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað.

Versa vottun er faggiltur úttektaraðili og hefur með úttekt sinni staðfest að jafnlaunakerfi Akraneskaupstaðar uppfylli kröfur jafnlaunastaðalsins IST 85. Jafnlaunastaðallinn tryggir fagleg vinnubrögð og fyrirbyggir beina og óbeina mismunum vegna kyns sem nýtist öllum stofnunum og fyrirtækjum.

Jafnréttisstofa hefur veitt Akraneskaupstað heimild til að nota jafnlaunamerkið sem er birt á heimasíðu Akraneskaupstaðar.

„Mikil vinna og metnaður hefur verið lögð í þessu vinnu og erum við hjá Akraneskaupstað ákaflega stolt af þessum merka áfanga,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri en áfanganum var fagnað á forstöðumannafundi þann 18. mars sl.

Jafnlaunastefna Akraneskaupstaðar