Áhugaverðar ábendingar um skjánotkun fyrir fólk á öllum aldri

Áhugavert málþing um skjánotkun fór fram nýverið í félagsmiðstöðinni Arnardal, í samvinnu við Brekkubæjar- og Grundaskóla. Eins og nafnið gefur til kynna var umfjöllunarefnið skjánotkun í frítíma og er þá átt við notkun á tölvu, sjónvarpi og snjallsíma. Þátttakendur voru á aldrinum 12-16 ára úr báðum skólum, alls 36 talsins.

Lúðvík Gunnarsson forstöðumaður Arnardals segir að markmiðið með þinginu hafi verið að setja fram viðmið um skjánotun í frítíma ásamt góðum siðum.

„Vinnan fór þannig fram að þátttakendum var skipt upp í hópa þar sem hver og einn átti að finna kosti og galla við skjánotkun. Að því loknu áttu allir að koma með hugmyndir að lausnum á göllunum. Þá settu hóparnir fram tímaviðmið um skjánotkun, þ.e. hversu langan tíma á dag mismunandi aldurshópar ættu að vera fyrir framan skjá, að hámarki. Loks komu hóparnir með hugmyndir um leikreglur og/eða góða siði þegar kemur að skjánotkun í frítíma. Að endingu áttu hóparnir svo að koma sér saman um endanlega niðurstöðu þingsins. Þingið var bæði fróðlegt og skemmtilegt og alveg ljóst að ungmennin okkar hafa sterkar skoðanir. Þá var sérstaklega gaman að sjá hversu skynsöm þau eru,“ segir Lúðvík.

Niðurstöður þingsins eru hugsuð fyrir hvern sem er og getur fólk nýtt þær það til að setja sér markmið og viðmið í skjánotkun í frítíma. Þar að auki geta foreldrar nýtt niðustöðurnar til setja markmið og viðmið með börnunum sínum.