Margt nýtt og spennandi í starfi Tónlistarskólans

Kennsla hefst í Tónlistarskólanum á Akranesi mánudaginn 28. ágúst. Nokkur nýmæli eru í starfsemi skólans á þessu hausti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.

Boðið verður upp á forskólakennslu í Brekkubæjarskóla og Grundarskóla í beinu framhaldi af skóladegi barnanna. Er vonast til að fleiri sjái sér þá fært að veita börnunum sínum tækifæri til að kynnast ævintýraheimi tónlistarinnar, en forskólinn er ætlaður nemendum í 1. og 2. bekk grunnskólans og býr þau undir hljóðfæranám. Aðalkennari í forskóla í vetur verður Rut Berg Guðmundsdóttir og er ennþá hægt að bæta við nemendum í forskólann. Umsóknarformið er að finna á heimasíðu Tónlistarskólans toska.is.

Í vetur verður einnig í fyrsta sinn kennt á selló eftir móðurmálsaðferð Suzuki. Suzuki sellónám hentar börnum allt frá 5 ára aldri en einnig þeim sem aðeins eldri eru. Kennari á selló verður Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir. Suzukikennslan byggir á virkri þátttöku foreldra og er því aðferð við hljóðfæranám sem styrkir sérstaklega samband foreldra og barna. Enn er pláss fyrir nemendur í Suzuki sellónám og er sótt um rafrænt á heimasíðu Tónlistarskólans toska.is.

Enn eitt nýmæli er að í vetur verður nemendum Tónlistarskólans sem eru í Heiðarskóla í fyrsta sinn boðin tónfræðikennsla í Heiðarskóla.

Nánari upplýsingar um nám í Tónlistarskólanum er að finna á heimasíðu skólans toska.is. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu skólans mánudaga til fimmtudaga kl. 12-16 og föstudaga kl. 9-13.

Vakin er athygli á því að enn er verið að vinna úr umsókum sem bárust í vor og ættu svör að berast til umsækjenda á næstu dögum eða í allra síðasta lagi í lok næstu viku.