Spölur hættir að rukka í göngin í september

Stórtíðindi bárust í dag frá aðalfundi Spalar sem á og rekur Hvalfjarðargöngin. Innheimtu veggjalds verður hætt í september á þessu ári – líklega í lok mánaðarins.

Framkvæmdastjóri, fjármálastjóri og endurskoðandi Spalar hafa farið rækilega yfir skuldbindingar félagsins annars vegar og tekjuáætlun hins vegar. Niðurstaðan er sem sagt sú að í einhvern tíma í september verði hætt að innheimta veggjald og í framhaldinu taki Vegagerðin við mannvirkinu og rekstri þess.

Gísli Gíslason, Gestur Pétursson, Gylfi R. Guðmundsson, Ólafur Adolfsson og Sævar Freyr Þráinsson.

Þess er að vænta að nánari tímasetning verði ákveðin í maímánuði.

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, upplýsti á aðalfundinum að heildarskuldbindingar félagsins til loka rekstrartímans næmu alls um 1.300 milljónum króna. Þar vegur þyngst annars vegar lokagreiðsla langtímaskulda Spalar við lífeyrissjóði, 418 milljónir króna að meðtöldum vöxtum og verðbótum og hins vegar endurgreiðsla veglykla og afsláttarkorta til viðskiptavina, alls um 422 milljónir króna.

2017 metár í umferðinni

Í skýrslu stjórnar, sem Gísli Gíslason, formaður Spalar ehf., flutti aðalfundinum, kom fram að á árinu 2017 fóru alls 2.549.994 ökutæki um Hvalfjarðargöng. Það er 8,3% aukning frá fyrra ári og 2017 er mesta umferðarárið frá því göngin voru opnuð sumarið 1998.

Meðalumferð (dagsumferð) árið 2017 var rétt tæplega 7.000 ökutæki en var 6.436 ökutæki á árinu 2016.

Gjaldskrá Hvalfjarðarganga hefur verið óbreytt frá 1. júlí 2011 og verður óbreytt þar til ríkið fær göngin afhent í haust. Í upphaflegum samningum Spalar var gert ráð fyrir því að veggjaldið fylgdi verðlagi í landinu. Umferðin varð mun meiri en áætlað var og tekjurnar þar með líka. Þessa hafa vegfarendur notið og veggjaldið verið lækkað oftar en það hefur hækkað á rekstrartímanum.

Stakt veggjald var ákveðið þúsund krónur þegar göngin voru opnuð fyrir tæplega 20 árum og er enn þúsund krónur. Ef veggjaldið hefði fylgt verðlagi væri þúsundkallinn orðinn nær 2.500 krónur.