Fyrrum Ryderleikmaður til starfa hjá Leyni

Hinn þaulreyndi John Garner hefur verið ráðinn golfkennari hjá Golfklúbbnum Leyni. Garner, sem er fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, mun starfa með Birgi Leifi Hafþórssyni íþróttastjóra Leynis. Garner mun hefja störf í maí og vera út september. Hann mun hafa umsjón með þjálfun barna – og unglinga hjá Leyni – ásamt því að sinna golfkennslu fyrir Leyni.

Ferilskrá Garners er engu lík. Hinn sjötugi heiðursmaður var tvívegis í Ryder-liði Evrópu og státar af sigri á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Hann hefur mikla reynslu sem golfkennari og starfaði m.a. sem landsliðsþjálfari Írlands árin 1983-1987, landsliðsþjálfari Íslands árin 1988-1995, og landsliðsþjálfari Wales 1992 og eftir það hefur hann farið víða um heim og kennt við góðan orðstír.

Garner giftist árið 2004 íslenskri konu, Svölu Óskarsdóttur Garner, en hún var í fremstu röð sem kylfingur á Íslandi á árum áður. Móðir Svölu er búsett á Akranesi en Garner og Svala hafa búið á Nýja-Sjálandi á undanförnum árum.

John hefur alltaf verið þekktur fyrir kunnáttu sína á stutta spilinu og hefur aðstoðað marga kylfinga með góðum árangri.

Aðspurður segir John Garner að hann hafi fyrst komið árið 1989 til Golfklúbbsins Leynis sem landsliðsþjálfari og hitt efnilega unglinga klúbbsins.

„Ég vissi það ekki þá að síðar meir yrðu tveir af þessum unglingum Íslandsmeistarar þ.e. Þórður Emil Ólafsson núverandi formaður Leynis og Birgir Leifur Hafþórsson núverandi íþróttastjóri Leynis og atvinnumaður í golfi. Fyrir mér er þetta eins og að koma heim og ég hlakka til að vera hluti af flottum hópi Leynis og kenna unglingum og félagsmönnum að verða betri kylfingar og njóta golfleiksins,“ segir Garner í viðtali á heimasíðu Leynis.

Hér má lesa ítarlegt viðtal við John Garner.