Skagamenn stefna á met í dag – Perlaðu af krafti á Jaðarsbökkum

Í dag er stefnt að því að setja met á Jaðarsbökkum. Í hátíðarsalnum verður perlað af krafti til styrktar góðu málefni. Íþróttabandalag Akraness ætlar að reyna að næla í Perlubikarinn – en það félag sem nær að perla flest armbönd til styrktar Krafti fær Perlubikarinn.

Viðburðurinn hefst kl. 15 í dag og stendur til 19.

Með því að taka þátt í viðburðinum geta Akurnesingar og ÍA átt möguleika á að hreppa Perlubikarinn en til þess þarf að perla meira en 2308 armbönd á fjórum tímum.

Það met settu Sunnlendingar 20. júní sl. Sunnlendingar náðu þá bikarnum af Akureyringum og munaði aldeilis mjóu þar sem Akureyringar voru með 2302 perluð armbönd.

Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum og eru þau seld til stuðnings Krafti og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltalandsliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Í tilkynningu frá ÍA eru allir Akurnesingar og iðkendur, þjálfara og forráðamenn aðildarfélaga ÍA hvattir til að taka þátt í skemmtilegu verkefni.

Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband.

Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni.

Auglýsing