Arnór Smárason í A-landsliðshópnum sem fer til Katar

Auglýsing



Skagamaðurinn Arnór Smárason er í A-landsliðshóp Íslands sem kemur saman í janúar í Katar. Erik Hamren landsliðsþjálfari tilkynnt hópinn í dag.

A-landslið karla hefur síðustu árin leikið vináttuleiki í janúar. Þau verkefni eru utan alþjóðlegra leikdaga og eru leikmennirnir sem taka þátt fyrir Íslands hönd því flestir frá félagsliðum á Norðurlöndunum og Íslandi, en þó ekki allir.

Arnór er þrítugur að aldri og hefur hann leikið 24 landsleiki fyrir Íslands og skorað í þeim 3 mörk. Samningur hans við norska liðið Lilleström rennur út um áramótin og er óvíst hvar Arnór mun leika á næstu leiktíð.

Í þessum verkefnum gefst leikmönnum sem jafnan eru utan leikmannahópsins á alþjóðlegu leikdögunum, í mótsleikjum, því tækifæri til að sýna sig og sanna, enda fer leikdögum fyrir vináttulandsleiki fækkandi.

Síðustu ár hefur landsliðið leikið í Indónesíu, Kína, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Bandaríkjunum, þar sem fjölmargir leikmenn hafa fengið tækifæri og þannig öðlast dýrmæta reynslu.

,,Við erum spenntir fyrir því að spila gegn erfiðum og áhugaverðum andstæðingum sem spila mismunandi gerð af knattspyrnu. Hópurinn hjá okkur er blanda af leikmönnum sem hefur mikla reynslu hjá okkur ásamt þeim sem hafa lítið komið við sögu. Það verður því gott að æfa við frábærar aðstæður,“ segir Hamrén á heimasíðu KSÍ.

Hópurinn

Markmenn
Ingvar Jónsson
Frederik Schram
Anton Ari Einarsson

Varnarmenn
Birkir Már Sævarsson
Kári Árnason
Hjörtur Hermannsson
Böðvar Böðvarsson
Adam Örn Arnarson
Eiður Aron Sigurbjörnsson
Davíð Kristján Ólafsson
Axel Óskar Andrésson

Miðjumenn
Arnór Smárason
Eggert Gunnþór Jónsson
Samúel Kári Friðjónsson
Guðmundur Þórarinsson
Aron Elís Þrándarson
Hilmar Árni Halldórsson
Jón Dagur Þorsteinsson
Alex Þór Hauksson
Willum Þór Willumsson

Sóknarmenn

Óttar Magnús Karlsson
Kristján Flóki Finnbogason
Andri Rúnar Bjarnason

Auglýsing



Auglýsing