Valdís Þóra keppir á sterkustu mótaröð veraldar í Ástralíu

Auglýsing



Val­dís Þóra Jóns­dótt­ir, úr Golfklúbbnum Leyni á Akra­nesi, fær tækifæri á atvinnumóti á bandarísku LPGA-mótaröðinni í þessari viku.

Mótið heitir ISPS Handa Vic Open en leikið er í Victoria. Þetta er annað árið í röð þar sem Valdís Þóra keppir á þessu móti. Í fyrra endaði hún í 57. sæti og komst í gegnum niðurskurðinn að loknum öðrum keppnisdegi.

Mótið er með nýstárlegu fyrirkomulagi þar sem að atvinnukonur og karlar keppa á sama tíma á þessu móti. Karlar af Evrópumótaröðinni og áströlsku mótaröðinni keppa á sama tíma á sömu keppnisvöllum. Tveir vellir eru notaðir á þessu sameiginlega móti og eru keppendur alls um 300. Verðlaunaféð er það sama hjá konum og körlum.

Valdís verður í ráshóp með Charlotte Thomas og Ingrid Gutierrez Nunez fyrstu tvo keppnisdagana.

Mótið er samstarfsverkefni LPGA og áströlsku mótaraðarinnar en Valdís tryggði sér keppnisrétt á síðarnefndu mótaröðinni nýverið. Mótið fer fram dagana 7.-10. febrúar.

Valdís fer af stað kl. 02:40 að íslenskum tíma aðfaranótt fimmtudagsins 7. febrúar eða kl. 13:40 að staðartíma í Viktoríufylki í Ástralíu. Hún leikur á Beach vellinum fyrsta hringinn.

Á öðrum keppnisdegi hefur hún leik kl. 8:40 á Creek vellinum eða kl. 21.40 að kvöldi fimmtudagsins 7. febrúar að íslensku tíma.

Valdís Þóra komst inn á mótið í fyrra með frábærum árangri á 18. holu úrtökumóti þar sem að 100 keppendur kepptu um þrjú laus sæti á mótið. Valdís endaði í efsta sæti ásamt tveimur öðrum keppendum.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var einnig á meðal keppenda í fyrra en hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Það var í fyrsta sinn sem tveir íslenskir kylfingar léku á sama mótinu á LPGA.

Hér er hægt að fylgjast með skori keppenda á ISPS Handa mótinu: 

Valdís Þóra skrifaði eftirfarandi á fésbókarsíðu sína:

Auglýsing



Auglýsing