Bæjarstjórn skorar á ríkið að tryggja fjármagn til Faxabrautar



Á fundi bæjarstjórnar Akraness sem fram fór í gær var fjallað um aðkomu ríkisins að uppbyggingu þjóðvegar í þéttbýli við Faxabraut.  Í ályktun sem sett fram á fundinum í gær eru samgönguyfirvöld og ríkisstjórn hvött til að tryggja nægt fjármagn til Faxabrautar – eigi síðar en á árunum 2021 og 2022.

Bæjarstjórnin samþykkti með öllum greiddum atkvæðum eftirfarandi ályktun.

Bæjarstjórn Akraness telur það mikið sanngirnismál að ríkið greiði þann kostnað sem þarf í uppbyggingu Faxabrautar. Faxabraut er þjóðvegur í þéttbýli sem þarf að hækka og styrkja, bæði vegna ástands hans og þeirrar byggðar sem fyrirhugað er að reisa á Sementsreitnum.

Með samþykkt Samgönguáætlunar fyrir árin 2019-2023 var 200 milljónum veitt í uppbyggingu Faxabrautar á árunum 2019 og 2020. Þetta eru góð tíðindi og að mati bæjarstjórnar Akraness mikilvæg fyrstu skref í átt að fullri fjármögnun ríkisins á þessari nauðsynlegu framkvæmd. Bæjarstjórn bendir á að verkið er kostnaðarmetið á 550 milljónir og því er hér aðeins um upphaf verkefnisins að ræða.

Bæjarstjórn Akraness hvetur samgönguyfirvöld og ríkisstjórn til að tryggja nægt fjármagn til Faxabrautar, eigi síðar en á árunum 2021 og 2022, eins og kemur fram í nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um Samgönguáætlun 2019-2023.

Bæjarstjórn Akraness mun fylgja þessu mikla sanngirnismáli eftir og þrýsta áfram á að full fjármögnun skili sér.

Áskorunin er send samgönguráðherra, umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, þingmönnum Norðvesturkjördæmis og Vegagerðinni.

Auglýsing



Auglýsing