Landsþekkt tónlistarfólk með tónleika á Gamla Kaupfélaginu



Írskir Vetrardagar standa yfir á Akranesi og er heilmargt áhugavert á dagskrá á næstu dögum.

Í Gamla Kaupfélaginu verða landsþekktir listamenn með tónleika fimmtudaginn 14. mars sem eru afar áhugaverðir.

Unnur Birna Björnsdóttir söngkona og fiðluleikari og Björn Thoroddsen gítaristi verða þar á sviðinu.

Þau Unni og Björn þarf vart að kynna fyrir tónlistarunnendum enda er hafa þau komið all víða við hérlendis og við mjög góðan orðstýr á erlendri grundu. Tónleika prógrammið er allskyns enda með þau tvö í fararbroddi sem geta spilað alla stíla og stílbrigði, það verður blús , jazz, django, Jethro Tull til dægur- og þjóðlaga, stoppað hjá Jimi Hendrix og í raun ekki alveg hægt að segja hvert tónleikarnir munu leiða okkur.

Smá rauður þráður í gegnum söguna og stílana.

Þeim til halds og traust verða Skúli Gíslason trommuleikari og Sigurgeir Skafti Flosason bassleikari.

Tónleikarnir eru eins og áður segir þann 14. mars klukkan 20:30 í Gamla Kaupfélaginu, alveg tilvalið að panta sér borð þar fyrir tónleika.

Hægt er að kaupa miða hér. 

Auglýsing



Auglýsing