Ísak skoraði tvö mörk – Ísland tryggði sér sæti í úrslitum EM U17



Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði tvö fyrstu mörk Íslands í 4-1 sigri U-17 ára landsliðs karla í undankeppni Evrópumótsins í dag. Andri Fannar Baldursson og Andri Lucas Guðjohnsen skoruðu einnig fyrir Ísland.

Með sigrinum gegn Hvíta-Rússlandi í dag tryggði Ísland sér sæti í úrslitakeppni EM 2019.

Fjórir Skagamenn eru í þessu liði, Ísak Bergmann og Oliver Stefánsson sem leika báðir með Norrköping í Svíþjóð – en Oliver er fyrirliði Íslands. Jón Gísli Eyfjörð Gíslason var í byrjunarliðinu í dag líkt og áður en hann kom til ÍA frá Tindastóli í vetur. Hákon Arnar Haraldsson er fjórði Skagamaðurinn en hann var varamaður í leiknum í dag

Lokakeppni fer fram í Dublin dagana 3.-19. maí næstkomandi. Dregið verður í riðla 4. apríl í Dublin.

Frá vinstri: Hákon Arnar, Oliveri, Jón Gísli og Ísak Bergmann.

Auglýsing



Auglýsing