Ungir drengir funduðu með bæjarstjóra og óskuðu eftir brettagarði á Akranesi


Hópur ungrar stráka á Akranesi á aldrinum 10-12 ára mættu á fund bæjarstjóra nýverið til þess að ræða um uppbyggingu brettagarðs, (e.skate park) hér á Akranesi.

Þessi hópur ásamt fleirum stundar svokallaða brettaíþrótt og þykir þeim skortur á aðstöðu til æfinga fyrir íþróttina.

Lögðu þeir áherslu á umræddur garður yrði staðsettur miðsvæðis þannig að hann væri aðgengilegur fyrir alla krakka í báðum grunnskólum á Akranesi.

Sævar Freyr bæjarstjóri þakkaði þeim kærlega fyrir komuna og mun fylgja málinu eftir við kjörna fulltrúa í bæjarstjórn samhliða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.