Akraneskaupstaður hefur ákveðið að auka þjónustu almenningssamgangna á Akranesi.
Í tilkynningu kemur fram að „auka strætisvagn“ sem kallaður verður „leið 2“ mun nú aka stóran hring um bæinn tvisvar sinnum að morgni fyrir skólabyrjun, einn hring í hádeginu og tvo hringi eftir að frístundastrætó hefur lokið akstri seinni part dags.
Sjá nánar í kortinu hér fyrir neðan.