Þrír leikmenn úr röðum ÍA hafa verið valdir til að taka þátt á úrtaksæfingum hjá U15 ára landsliði KSÍ í karlaflokki.
Æfingarnar fara fram 11.-13. janúar og er Skagamaðurinn Lúðvík Gunnarsson þjálfari liðsins.
Leikmennirnir úr röðum ÍA eru Birkir Hrafn Samúelsson, Jón Þór Finnbogason og Sævar Hrafn Sævarsson.
Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ, en Lúðvík valdi alls 28 leikmenn sem koma frá 15 félögum.
Hópurinn er þannig skipaður:
- Gylfi Berg Snæhólm – Breiðablik
- Gunnleifur Orri Gunnleifsson – Breiðablik
- Ásgeir Steinn Steinarsson – FH
- Gísli Snær Weywadt Gíslason – FH
- Ketill Orri Ketilsson – FH
- Kristófer Tómas Gíslason – Fram
- Viktor Bjarki Daðason – Fram
- Guðmar Gauti Sævarsson – Fylkir
- Stefán Logi Sigurjónsson – Fylkir
- Þorvaldur Smári Jónsson – HK
- Kristófer Máni Sigurðsson – Höttur
- Birkir Hrafn Samúelsson – ÍA
- Jón Þór Finnbogason – ÍA
- Sævar Hrafn Sævarsson – ÍA
- Kristófer Páll Lúðvíksson – ÍR
- Mihajlo Rajakovac – Keflavík
- Karan Gurung – Leiknir R.
- Gunnar Orri Olsen – Stjarnan
- Matthías Dagur Þorsteinsson – Stjarnan
- Tómas Óli Kristjánsson – Stjarnan
- Kristinn Tjörvi Björnsson – Víkingur R.
- Viktor Steinn Sverrisson – Víkingur R.
- Alekss Kotlevs – Völsungur
- Fabian Bujnovski – Þróttur R.
- Ásbjörn Líndal Arnarsson – Þór
- Egill Orri Arnarsson – Þór
- Einar Freyr Halldórsson – Þór
- Sverrir Páll Ingason – Þór