Fjölmennur hópur eldri félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness fór í vel heppnaða dagsferð s.l. miðvikudag í boði VLFA. 
Frá þessu er greint á vef félagsins. 
Löng hefð er fyrir slíkum ferðum. Leiðsögumaður ferðarinnar var Gísli Einarsson. 
Ferðalagið hófst á Akranesi snemma morguns og fyrsti viðkomustaðurinn var Hvanneyri. Þar tók Bjarni Guðmundsson prófessor og fyrrum kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands á móti hópnum. 
Frá Hvanneyri fór hópurinn að Bifröst og Reykholt var þriðji viðkomustaðurinn. 
Hótel Hamar við golfvöllinn í Borgarnesi var síðasti áfangastaðurinn áður en haldið var heim á leið á Akranes.
Nánari frásögn frá ferðinni má lesa á vef VLFA og og þar er einnig ítarlegt myndasafn. Smelltu hér fyrir myndasafnið. 









