Viðamikil uppbygging fyrirhuguð á Mánabraut – ráðhús, leiguhúsnæði og ný heilsugæslustöð

Í dag var skrifað undir viljayfirlýsingu um viðamikla uppbyggingu á Mánabraut 20 á Akranesi. 

Í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að í því verkefni sé gert ráð fyrir aðstöðu fyrir ráðhús Akraneskaupstaðar, leiguhúsnæði fyrir stofnanir ríkisins á Akranesi og aðstöðu fyrir nýja heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar vesturlands á Akranesi (HVE).

Sigurður Ingi Jóhannsson , Fjármála- og efnahagsráðherra, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra og Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri Akraness skrifuðu undir viljayfirlýsinguna í dag. 

Viljayfirlýsingin felur í sér að Akraneskaupstaður hyggst endurbyggja Mánabraut 20 þar sem stefnt er að því að ný bygging muni hýsa ráðhús Akraneskaupstaðar og mögulega fleiri stofnanir sveitarfélagsins. Ríkið lýsir yfir áhuga á að leigja aðstöðu í nýju húsnæðinu fyrir starfsemi ríkisstofnana á Akranesi

Gamla skrifstofubygging Sementsverksmiðjunnar við Mánabraut 20, hefur til þessa dags verið í sameign Ríkis og Akraneskaupstaðar. Nú hefur Akraneskaupstaður eignast alla bygginguns og er hafinn undirbúningur að skipulagi. Með viljayfirlýsingu þeirri sem gerð er jafnhliða kaupum Akraneskaupstaðar á eignarhlut Ríkisins er hægt að hefja samstarf um byggingu á nútímanlegri byggingu sem getur hýst ráðhús Akraneskskaupstaðar og mögulega fleiri stofnanir á vegum sveitarfélagsins. Einnig er settur starfshópur með FSRE um að ný bygging verði leiguhúsnæði fyrir stofnanir ríkisins á Akranesi.

Tilkynninguna má lesa í heild sinni á vef Akraneskaupstaðar.

 

Mynd tekin við undirritun viljayfirlýsingar. Frá vinstri: Sigurður Ingi Jóhannsson , Fjármála- og efnahagsráðherra, Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, forstjóri HVE og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.