Kynna tillögur um styrki fyrir óstaðbundin störf hjá hinu opinbera

Innviðaráðuneytið hefur kynnt tillögur til þess að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni – og þar á meðal á Akranesi. 

Ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu eiga kost á að sækja um styrki til að ráða í óstaðbundin störf á þeirra vegum utan höfuðborgarsvæðisins, m.a. til að mæta kostnaði við aðstöðu fyrir starfsfólk.

Kynning á þessu verkefni verður kl. 17.00 miðvikudaginn 2. október í nýsköpunarsetrinu á Breið.

Þar mun Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri Akraness kynna tillögurnar sem eru frá Innviðaráðuneytinu og Byggðastofnun.

Íbúar á Akranesi sem starfa hjá hinu opinbera geta um næstu áramót fengið styrk til að setja upp starfsstöð t.d. í nýsköpunarsetrinu á Breið. 

Nánar hér:

Markmiðið með tillögunum er að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni með fjölbreyttum störfum og styrkja þannig búsetu í byggðum landsins.

Nánar um styrkina

Styrkir vegna óstaðbundinna starfa verða auglýstir í haust. Ríkisstofnanir sem staðsettar eru á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um styrk vegna starfa sem ráðið verður í utan þess svæðis og er þeim ætlað að koma til móts við ferðakostnað og leigu á aðstöðu í vinnustaðaklösum.

Veita má styrk til stofnunar vegna starfs til allt að þriggja ára. Hámarksstuðningur við hvert starf getur numið allt að 2 milljónum króna á ári. Byggðastofnun mun annast umsjón með úthlutun styrkja og gerð samninga og verður árangur af verkefninu metinn fyrir lok árs 2025.