Samningur í takt við nýjar áherslur

Norðurál og Faxaflóahafnir hafa endurnýjað samstarfssamning vegna starfsemi Norðuráls á hafnarsvæðinu á Grundartanga. Norðurál og Faxaflóahafnir hafa lengi átt í góðu samstarfi, eða allt frá stofnun Norðuráls árið 1998.

Endurnýjaður samningur tekur mið af breyttum þörfum vegna nýrrar framleiðslulínu í álveri Norðuráls. Ný framleiðslulína mun auka verðmæti framleiðslunnar með því að færa virðisaukandi framleiðslu, sem hingað til hefur farið fram erlendis, til Íslands. Með því að nota íslenska orku verður kolefnisspor framleiðslunnar mun minna en ef hún færi fram erlendis.

Með þróun hafnarinnviða og hafnarsvæða eru Faxaflóahafnir drifkraftur viðskipta- og atvinnulífs á Faxaflóasvæðinu og veita skilvirka þjónustu við fyrirtæki og skip.

„Eldri hafnarsamningur var kominn til ára sinna og að einhverju leiti barn síns tíma. Þessi samningur styður við framtíðaráform og fjárfestingar Faxaflóahafna á Grundartangasvæðinu. Við fögnum þessu skrefi í samvinnu við þennan mikilvæga viðskiptavin okkar,“ segir Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.

„Samningurinn undirstrikar breytt umhverfi beggja aðila frá því upphaflegur samningur var gerður. Það er von okkar að hann styrki enn frekar sterkt viðskiptasamband Norðuráls og Faxaflóahafna,“ segir Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls.