Kaffihús verður opnað í Stúkuhúsinu í byrjun desember á þessu ári.
Samningur þess efnis var undirritaður í þessari viku.
Díana Bergsdóttir stendur á bak við verkefnið.
Stúkuhúsið var upphaflega byggt sem hlaða og fjós um 1916 og stóð við Háteig 11.
Stúkan Akurblóm nr. 3, sem starfaði á Akranesi 1887-2000, eignaðist húsið og endurgerði það fyrir starfsemi sína árið 1950.
Barnastúkan Stjarnan nr. 103 starfaði þar jafnframt og ýmsar skemmtanir fóru þar fram. Um nokkurra ára skeið voru fundir bæjarstjórnar Akraness haldnir í húsinu.
Byggðasafnið í Görðum eignaðist húsið árið 2004 og lauk endurgerð þess árið 2007.
Salurinn í Stúkuhúsinu rúmar um 40 manns.
Nánar á samfélagsmiðlum –
Smelltu hér fyrir Instagram síðuna.