Aníta Hauksdóttir, sem keppir fyrir ÍA, var nýverið kjörin akstursíþróttakona ársins 2024 – og er þetta í fimmta sinn sem hún fær þessa viðurkenningu frá sérsambandinu.
Aníta keppir í motocrossi, enduro og hard enduro og tvöfaldur Íslandsmeistari. Hún er Íslandsmeistari í motocrossi og Íslandsmeistari í Enduro. Aníta hefur fagnað alls 10 Íslandsmeistaratitlum á ferlinum
Aníta hefur verið að vinna sig út úr alvarlegum meiðslum sem hún varð fyrir undir lok síðasta tímabils.
Hún varð fyrir því óhappi að slíta krossband, rífa liðþófa, skadda brjósk undir hnéskelinni, fá sprungur í sköflung og togna illa í ökla. Eftir 3 aðgerðir á hné og viðstöðulausri endurhæfingu náði hún á aðeins 7 mánuðum að komast aftur á hjólið, og það rétt fyrir byrjun keppnistímabils.
Í október keppti hún í 5. umferð heimsmeistaramótsins í Hard enduro í Tyrklandi og hafnaði í 3. sæti og kom því heim með brons medalíu, magnaður árangur.
Á uppskeruhátíð MSÍ þann 2. nóvember s.l. var Aníta kosin Akstursíþróttakona ársins 2024 o
Næst á dagskrá hjá Anítu er ein erfiðasta hardenduro keppni í heimi, Roof of Africa, sem fer fram dagana 28.-30. nóvember í Suður Afríku.