Verkalýðsfélag Akraness og Elkem á Íslandi hafa skrifað undir nýjan kjarasamning. Frá þessu er greint á vef VLFA.
Þar kemur fram að samningaviðræðurnar hafi verið krefjandi og er formaður félagsins, Vilhjálmur Birgisson, sáttur með niðurstöðuna.

Í tilkynningunni kemur fram að á fyrsta ári er samningurinn í anda þess sem samið var um á hinum almenna vinnumarkaði en samningurinn gildir í 4 ár og mun taka breytingum með sama hætti og kjarasamningar stóriðjunnar á Grundartanga hafa gert frá árinu 2015, það er að segja með tengingu við launavísitölu. Orlofs- og desemberuppbætur munu hækka úr 291.078 kr. hvor um sig í 308.766 kr. og munu því orlofs- og desemberuppbætur nema samtals 617.532 kr.
Lægsti taxti ofngæslumanna mun nema 471.050 kr. og dagmanna 481.038 kr. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2025 og er afturvirkur um 2 mánuði þannig að starfsmenn munu fá afturvirkni sem nemur í kringum 100.000 kr. en almennt eru laun verkamanna á vöktum, þegar allt er tekið til, að hækka um rúmar 50.000 kr. á mánuði.
Samningurinn verður kynntur í Elkem á fimmtudaginn og stefnt er að því að kosning hefjist þá. Kosningin verður rafræn og mun standa yfir í nokkra daga. Hér má sjá kjarasamninginn.
Félagsmenn sem hafa kosningarétt hafa fengið sms skilaboð um kosninguna sem hófst kl. 12 fimmtudaginn 13. mars og er opin til kl. 12 þriðjudaginn 18. mars. nk.