Haukur Andri Haraldsson, leikmaður mfl.  karla í knattspyrnu hjá ÍA og Hinrik Harðarson, fyrrum leikmaður ÍA, hafa verið valdir í U-21 árs landsliðs Íslands sem leikur tvo æfingaleiki á næstunni. 

Hinrik var seldur til norska liðsins Odd fyrr á þessu ári en framherjinn var í lykilhlutverki hjá ÍA á síðustu leiktíð. 

Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari liðsins sem mætir Egyptum 6. júní og Kólumbíu 9. júní. Báðir leikirnir fara fram í Kaíró í Egyptalandi.

KR-ingurinn Jóhannes Kristinn Bjarnason er í hópnum en faðir hans er Bjarni Guðjónsson fyrrum leikmaður mfl. ÍA.  

Hópurinn er þannig skipaður: 

  • Lúkas J. Blöndal Petersson – Hoffenheim – 8 leikir
  • Halldór Snær Georgsson – KR – 3 leikir
  • Logi Hrafn Róbertsson – NK Istra – 15 leikir
  • Hlynur Freyr Karlsson – Brommapojkarna – 11 leikir
  • Eggert Aron Guðmundsson – Brann – 11 leikir, 1 mark
  • Hilmir Rafn Mikaelsson – Viking Stavanger – 11 leikir, 3 mörk
  • Daníel Freyr Kristjánsson – FC Frederica – 8 leikir
  • Benoný Breki Andrésson – Stockport FC – 8 leikir, 3 mörk
  • Ágúst Orri Þorsteinsson – Breiðablik – 3 leikir
  • Helgi Fróði Ingason – Helmond Sport – 3 leikir
  • Jóhannes Kristinn Bjarnason – KR – 3 leikir, 1 mark
  • Róbert Frosti Þorkelsson – Gais – 3 leikir
  • Ásgeir Helgi Orrason – Breiðablik – 2 leikir
  • Baldur Kári Helgason – FH – 2 leikir
  • Haukur Andri Haraldsson – ÍA – 2 leikir, 1 mark
  • Hinrik Harðarson – Odd – 2 leikir, 1 mark
  • Július Mar Júlíusson – KR – 1 leikur
  • Daníel Tristan Gudjohnsen – Malmö FF
  • Kjartan Már Kjartansson – Stjarnan
  • Nóel Atli Arnórsson – Aalborg BK
  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?