Á Akranesi eru fjórir sementstankar sem taka um 4000 tonn af sementi hver.
Sementsverksmiðjan og Akraneskaupstaður gerðu árið 2013 samning sem tryggir að verksmiðjan geti haft þessa fjóra sementstanka til umráða fram til 1. ágúst 2028.
Um var að ræða samning til 15 ára. Að þeim tíma liðnum fær Akraneskaupstaður sementstankana afhenta og er gert ráð fyrir að starfssemi Sementsverksmiðjunnar verði hætt á árinu 2028.
Í tillögu Lárusar kemur eftirfarandi fram:
Í þessu metnaðarfulla þróunarverkefni er lögð áhersla á að endurvekja þessi sögufrægu mannvirki sem fjölbreytt rými sem þjónar íbúum, styður við mannlíf og heiðrar arfleifð svæðisins.
Lárus Freyr Lárusson hannaði framtíðarsýn fyrir hvernig svæðið gæti litið út og segir þetta um tilgang verkefnisins:
„Þetta er framtíð sem byggir á fortíð – og horfir fram á veginn.“
Verkefnið snýst um að varðveita sögulegt gildi sílóanna á sama tíma og þeim er gefið nýtt hlutverk. Tilgangurinn er að skapa líflegt samkomusvæði sem hvetur til samfélagslegra tengsla og vaxtar. Sílóið mun aftur verða hluti af daglegu lífi bæjarbúa – og nýr áfangastaður fyrir bæði heimamenn og gesti.
- Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
- Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
- Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?